AÐALFUNDUR 2026 – framhaldsaðalfundur 30.4. kl. 17 í Sigtún 42

AÐALFUNDUR 30. APRÍL
Aðalfundur Geðverndarfélagsins verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl. 17 að Sigtúni 42, húsi ÖBÍ.
Fundurinn hefst kl. 17.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 6. gr. laga félagsins:
„Verkefni aðalfundar eru:
a) Stjórnin gefur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári.
b) Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaða reikninga ársins.
c) Lagabreytingar, ef nokkrar eru.
d) Kosning formanns, stjórnar og tveggja skoðunarmanna.
e) Formaður gerir grein fyrir helstu verkefnum, sem framundan kunnna að virðast.
f) Árgjald ákveðið til eins árs í senn.
g) Önnur mál.“
Félagar eru hvattir til að mæta.
Athugið að aðeins skuldlausir félagar með árgjöld geta mætt á aðalfundinn og greitt atkvæði.

Með góðri kveðju,

f.h. stjórnar GÍ

GUNNLAUG THORLACIUS

Formaður

 

AÐALFUNDUR 2026 – framhaldsaðalfundur 30.4. kl. 17 í Sigtún 42