Við vekjum athygli á því að fimmtudaginn 24. mars mun geðlæknirinn Bessel van der Kolk, höfundur metsölu bókarinnar The Body Keeps the Score (2014),
vera með rafrænan fyrirlestur á málþinginu Líkaminn man á Læknadögum 2022, auk þess að taka þátt í umræðum að erindi loknu.
Heilbrigðisstarfsfólk getur keypt dagspassa í Hörpu og hlýtt á Bessel auk fleiri áhugaverðra fyrirlestra um andlega-og líkamlega heilsu, áföll, tengsl og samskipti.
Dagspassi kostar kr. 15.000.-
Viðburðurinn verður ekki í streymi.
Bessel van der Kolk er geðlæknir, rithöfundur, rannsakandi og kennari. Hann er prófessor í Geðlæknisfræði við Læknadeild Háskólans í Boston og forstöðumaður Trauma Research Foundation í Brooklyn Massachusetts.
Hann hefur starfað við rannsóknir á áfallastreitu (PTSD) frá 1970 og hefur birt yfir 150 vísindagreinar og einnig gefið út bækurnar: Posttraumatic Stress Disorder (1984), Psychological Trauma (1987) og Traumatic Stress (1996).
Hann hefur verið stjórnarformaður samtakanna International Society for Traumatic Stress Studies og varaformaður fyrir National Child Traumatic Stress Network.
Nánari lýsingar á starfi hans og vísindum má sjá á vefsíðu hans:
https://www.besselvanderkolk.com
Salur: Silfurberg B
Hádegisfyrirlestur
12:10 – 13:00 Í hvaða hlutverki ert þú?
Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH, P.I.T. meðferðaraðili
LÍKAMINN MAN / The Body Keeps the Score
Fundarstjóri: Anna María Jónsdóttir, Geðlæknir og einn af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna
13:10 – 13:20 Margrét Ólafía Tómasdóttir, PhD, heimilslæknir
Formaður félags íslenskra heimilislækna
13:20 – 13:40 Tengsl, Samskipti og umferðarljósin!
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir
13:40 – 14:20 The Body Keeps the Score
Bessel van der Kolk, Psychiatrist
14:20 – 14:40 Opnar umræður
Dr. van der Kolk og Margrét Ólafía Tómasdóttir
14:40 – 15:00 Kaffi
15:00 – 15:20 Heilsa Kvenna
Auður Smith, kvensjúkdómalæknir
15:20 – 15:40 Heilsa Karla
Guðmundur Jóhannsson, lyf- og bráðalæknir
15:40 – 16:00 Heilaheilsa – taugateygjanleiki og hugleiðsla
Ingvar Hákon Ólafsson, heila- og taugaskurðlæknir
16:00 – 16:10 Hugleiðsla
Laufey Steindórsdóttir, gjörgæsluhjúkrunarfræðingur, jóga- og hugleiðslukennari