Aðalfundur Geðverndarfélagsins er í dag.
Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf verður tekin til afgreiðslu tillaga stjórnar félagsins að stefnu í geðheilbrigðismálum yngstu samborgara okkar.
Reiknað hefur verið út að samfélagið getur sparað sér 7 milljarða árlega með því að halda vel utan um mæður á meðgöngu og börn þeirra fyrstu tvö árin. 80% heilans er fullmótað við þriggja ára aldur. Sífellt eru að koma fram niðurstöður rannsókna sem sýna hve mikilvægur þessi tími er í þroska og þróun fósturs í móðurkviði og barnsins fyrstu tvö árin.
Tillaga stjórnarinnar fylgir hér með.
Geðheilbrigði_ stefna til 10 ára
Geðheilbrgiði yngstu samborgara okkar