Solihull námskeiðin fara af stað

Eftir mikinn undirbúning og vinnu við þýðingar eru fyrstu Solihull námskeiðin að fara af stað.

2D Grunnnámskeið verður í haldið 11. og 18. maí nk í Hásal, Hátúni 10 (Öryrkjabandalagsblokkinni). Námskeiðið hefst báða dagana kl. 9 og lýkur kl. 16.  Hvor dagurinn er 6 klst.

Öllum er heimill aðgangur að námskeiðinu.

Þátttakendur geta mest verið 12.

Vika líður milli fyrri dags og seinni dags. Sá háttur er hafður á til að þátttakendur notað tímann á milli námskeiðsdaganna til að velta fyrir sér samskiptum foreldra og ungra barna, t.d. með því að fara þar sem fólk kemur saman og gera eigin “vettvangsathuganir.”

Kennarar eru tveir, Annar María Jónsdóttir, geðlæknir, og annar kennari sem verður kynntur síðar.

Upprifjunarnámskeið 1D verður haldið á sama stað 4. maí.

Leiðbeinendanámskeið 1D verður haldið á sama stað 9. maí.

Verð fyrir 2D Grunnnámskeiðið er 59.000 kr. Vakin er athygli á að hægt er að sækja um styrk frá viðkomandi stéttarfélagi fyrir námskeiðskostnaðinum.

Verð fyrir dagsnámskeið er 29.000 kr.

Hægt er að skrá sig á námskeiðin með því að senda póst á gedvernd@gedvernd.is.

Nauðsynlegt er að kaupa bókina The first five years (400 bls). Hún kostar 14.900 kr.

Grunnnámskeið 2D

 

    Velja námskeið (nauðsynlegt):

    Nafn (nauðsynlegt)

    Kennitala (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Skilaboð til Geðverndarfélagsins

    Solihull námskeiðin fara af stað